Ný og betri Rótarýklukka á Flæðunum

Félagar í Rótarýklúbbi Sauðárkróks stilltu sér upp við klukkuna góðu í gær.  MYND: RÓTARÝKLÚBBUR SAUÐÁRKRÓKS
Félagar í Rótarýklúbbi Sauðárkróks stilltu sér upp við klukkuna góðu í gær. MYND: RÓTARÝKLÚBBUR SAUÐÁRKRÓKS

Glöggir íbúar Sauðárkróks sem átt hafa erindi eftir Skagfirðingabrautinni nú í vikunni hafa kannski tekið eftir að búið er að skipta út Rótarýklukkunni ágætu sem sýnt hefur tíma og hitastig síðustu árin. Nýja klukkan er að sjálfsögðu fullkomnari en sú gamla.

Á FB-síðu Rótarýklúbbs Sauðárkróks segir: -Mánudaginn 6. febrúar var ný útiklukka tekin í notkun á Flæðunum. Rótarýklúbburinn stóð á sínum tíma fyrir kaupum og uppsetningu á útiklukku frá franska klukkuframleiðandanum Bodet. Klukkan fékk að þjóna vegfarendum á Króknum um dágóðan tíma, en á endanum þótti Rótarýfélögum tímabært að huga að endurnýjun. Það var því úr að menn settu sig í samband við styrktaraðila þessa verkefnis frá upphafi, Vodafone og ákvörðun tekin um kaup á nýrri klukku frá sama framleiðanda.-

Gamla kukkan var reyndar skemmtilega duttlungafull og sérvitur og sýndi til að mynda ekki alltaf sama hitastigi þeim sem komu utan úr bæ eða framan að. Nýja klukkan, sem er af annarri kynslóð ef svo má segja, sýnir bæði tíma, hitastig og dagsetningu og ku vera harðákveðin í að sýna sömu hitastigin í báðar áttir.

Það voru starfsmenn Rariks á Sauðárkrók sem sáu um uppsetningu á klukkunni. Rótarýklúbburinn vill koma á framfæri þökk til þeirra ásamt fyrirtækinu Vodafone sem hefur í gegnum tíðina stutt þetta verkefni duglega.

Fleiri fréttir