Ný Skagfirðingabók á markað

33. hefti Skagfirðingabókar er komin úr prentun og verður henni dreift til áskrifenda á næstu dögum. Skagfirðingabók kom fyrst út árið 1966 og fagnar útgáfan því 45 ára afmæli á þessu ári. Í þessu nýjasta hefti eru margar áhugaverðar greinar að vanda og bókin mikið myndskreytt.

 

Í bókinni ritar Gunnar Stefánsson um Andrés Björnsson fv. útvarpsstjóra, Margrét Margeirsdóttir er með grein er hún kallar Landnemar í Vesturheimi og segir frá Skagfirðingum er fluttu til Kanada. Bernharð Haraldsson birtir minningarbrot um Stefán á Höskuldsstöðum, Árni Gíslason í Eyhildarholti ritar grein um nábýlið við Héraðsvötnin, Sigurjón Páll Ísaksson birtir grein um legstein Kristínar Torfadóttur í Hólakirkjugarði,  Sigríður Sigurðardóttir skrifar um þjónustuna og ígangsfötin, Haraldur Jóhannsson ritar minningar um Vilhelm Erlendsson kaupmann á Hofsósi og Hallfríði Pálmadóttur konu hans, Hörður Húnfjörð Pálsson hefur skráð æskuminningar frá Sauðárkróki og lokagreinin er eftir Sigtrygg Jón Björnsson um Hólaýtuna. Bókin er alls 198 að stærð

Þeir sem vilja eignast bókina þurfa að hafa samband við Sögufélag Skagfirðinga í síma 4536640 eða á netfangið saga@skagafjordur.is.

Fleiri fréttir