Ný Skagfirðingabók að koma út
33. hefti Skagfirðingabókar er væntanlegt úr bókbandi á næstu dögum. Fer heftið þá í dreifingu til félagsmanna og í almenna sölu. Skagfirðingabók kom fyrst út árið 1966 og fagnar útgáfan því 45 ára afmæli á þessu ári.
Í upphafi var tilgangurinn með útgáfu Skagfirðingabókar að birta sögulegan fróðleik, persónusögu og sveita- og staðháttalýsingar og, eins og segir í formála fyrstu bókarinnar, að varðveita frá gleymsku margvíslegan fróðleik um Skagafjörð og Skagfirðinga. Frá upphafi var því ætlunin að Skagfirðingabók yrði fyrst og fremst sagnfræðilegt rit og því ólíkt öðrum héraðsritum, sem fóru að koma út um svipað leyti, þar sem blandað var saman annálum líðandi stundar, bókmenntum og kveðskap við viðtöl og sögulega umfjöllun.
Í 45 ára sögu Skagfirðingabókar hefur birst gríðarmikið efni úr skagfirskri sögu og víst að með útgáfu þessa rits hefur mörgu verið bjargað frá glatkistunni. Mikill fjöldi manna og kvenna hafa ritað greinar í ritið og hafa greinar í Skagfirðingabók snert flestar greinar sagnfræði og sögulegs fróðleiks.
Í þessu nýjasta hefti eru margar áhugaverðar greinar að vanda og bókin mikið myndskreytt. Hún verður um 200 blaðsíður að stærð.
/Sögufélag Skagfirðinga