Ný starfsstöð Tónlistarskóla Skagafjarðar á Sauðárkróki

Starfsstöð Tónlistarskóla Skagafjarðar á Sauðárkróki mun á næstunni flytja úr Borgarflöt 1 og í húsakynni Árskóla á Sauðárkróki, eins og sagt er frá í fréttatilkynningu frá sveitarfélaginu Skagafirði.
Undanfarin ár hefur kennsla Tónlistarskóla Skagafjarðar verið samþætt í húsakynnum Varmahlíðarskóla og Grunnskólans austan Vatna. „Þetta hefur gefið mjög góða raun á þessum stöðum og almenn ánægja er meðal nemenda, foreldra og starfsmanna með þessa skipan, enda er hlutfall nemenda í tónlistarnámi mun hærra þar en á Sauðárkróki,“ segir í fréttatilkynningunni.
Með þessari samvinnu tónlistarskólans og grunnskólanna hefur tekist að gera öflugt starf tónlistarskólans enn betra enda er litið á starfsemi tónlistarskólans sem afar mikilvægan þátt í skólastarfinu á hverju svæði fyrir sig. „Framtíðarsýn margra hefur verið sú að slíkt yrði einnig gert á Sauðárkróki. Nú er sá draumur að rætast,“ segir ennfremur í fréttatilkynningunni.
Í mars s.l. fól fræðslunefnd sviðsstjóra fjölskyldusviðs að gera tillögur um útfærslu og kostnaðargreiningu verksins. Greinargerð og tillögur voru lagðar fyrir fræðslunefnd og byggðarráð í júní og ákvörðun tekin um framkvæmdirnar í kjölfarið. Undanfarnar vikur hefur verið unnið að breytingum í Árskóla svo koma megi tónlistarkennslunni fyrir þar og er nú verið er að leggja lokahönd á þær framkvæmdir. Á næstu dögum verður flutningurinn endanlega dagsettur.
„Vonir eru bundnar við að flutningur starfsemi tónlistarskólans á Sauðárkróki í Árskóla verði lyftistöng fyrir tónlistarnám barna og unglinga á staðnum og ýti undir enn metnaðarfyllra starf skólans. Einnig eru bundnar vonir við að samstarf þetta efli enn frekar gott samstarf starfsfólks skólanna,“ segir loks í fréttatilkynningunni frá Sveitarfélaginu Skagafirði.