Ný starfsstöð Vinnumálastofnunar á Sauðárkróki
Auglýst hefur verið eftir forstöðumanni þjónustuskrifstofu fyrir húsaleigubætur á Sauðárkróki. Um er að ræða nýja starfsstöð Vinnumálastofnunar, sem er tilkomin vegna breytinga á lögum um húsaleigubætur. Áætlað er að forstöðumaður taki til starfa 1. ágúst en starfsstöðin, sem áformað er að skapi tólf til fjórtán störf, hefji starfsemi sína um næsta áramót.
Að sögn Unnar Sverrisdóttur, aðstoðarforstjóra hjá Vinnumálastofnun, segir að hin nýja starfsstöð sé tilkomin í framhaldi af því að samþykkt voru ný lög á Alþingi í vor þar sem verið er að breyta húsnæðisbótakerfinu. „Þetta snýr að þeim sem eru í leiguhúsnæði en vaxtabótakerfið er áfram óbreytt, fyrir þá sem eru í eigin húsnæði. Nú er þetta komið til ríkisins og Vinnumálastofnun var falið að annast framkvæmd og eftirlit með þessum lögum,“ segir hún.
Unnur segir jafnframt að strax hafi verið ákveðið að fara með hina nýju starfsemi út á land þar sem auðveldara sé að fara með það sem er nýtt strax út á land, það sé auðveldara en að rífa upp gamlar stofnanir sem eru orðnar rótgrónar. „Niðurstaðan varð sú að þetta færi á Sauðárkrók. Fyrsta skrefið er að auglýsa eftir forstöðumanni svo hann geti tekið þátt í innleiðingu á þessu.“
Unnur segir að stofnunin taki til starfa á haustmánuðum en lögin taki gildi um áramót. Áðurnefnd lagabreyting felur í sér að húsnæðisbætur til þeirra sem eru í leiguhúsnæði færist frá sveitarfélögum til ríkisins og einnig á hún að leiða til hækkunar á bótum og bæta hag þeirra sem eru í leiguhúsnæði.
Unnur segir að endanleg greining á þeim tólf til fjórtán störfum sem munu skapast eigi eftir að fara fram. „Þetta eru störf sem krefjast alls kyns menntunar, meðal annars tölvukunnáttu. En við eigum eftir að greina þetta endanlega og búa til starfslýsingar en ég geri ráð fyrir að meirihluti starfanna verði fyrir háskólamenntaða.“
Að sögn Unnar eru málefni hinnar nýju starfsstöðvar á byrjunarreit og ekki sé ljóst hvar húsnæði fæst fyrir starfssemina, en þetta muni allt skýrast mjög hratt á næstu mánuðum. Fyrir er Vinnumálastofnun með tvær starfsstöðvar á Norðurlandi vestra, fæðingarorlofssjóð á Hvammstanga og greiðslustofu atvinnuleysisbóta á Skagaströnd. „Reynslan af því er mjög góð og þess vegna fannst okkur þetta upplagt,“ sagði Unnur að lokum.