Ný stjórn hjá leikfélagi Sauðárkróks

Aðalfundur Leikfélags Sauðárkróks var haldinn í Leikborg í gærkvöld. Á heimssíðu félagsins kemur fram að á fundinn mættu 10 manns og fór hann vel fram. Lesin var ársskýrsla síðastliðins leikárs, farið yfir reikninga og kosið í stjórn og aðrar nefndir.

Eftirtaldir sitja í nýrri stjórn LS leikárið 2011-2012:

Sigurlaug Dóra Ingimundardóttir, formaður, en aðrir stjórnarmeðlimir eru

Agnes Skúladóttir, Hanna Bryndís Þórisdóttir, Rakel Rögnvaldsdóttir og Sigrún Heiða Pétursdóttir. Í varastjórn eru Hjörtur Gunnarsson, Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir og Sigurveig Dögg Þormóðsdóttir.

Fleiri fréttir