Nýir keppnisjakkar hjá Þyt
Stjórn hestamannafélags Þyts er að kanna áhuga félagsmanna á því að panta nýja keppnisjakka. Jakkana verður hægt að máta í dag í Lindarbergi, miðvikudaginn 25. apríl eftir kl. 17.00 en einnig er hægt að hringja í síma 863-7786 ef fólk vill máta fyrr um daginn. Jakkana verður jafnframt hægt að máta fimmtudaginn 26. apríl til kl. 19.00 á Lækjamóti hjá Vigdísi, segir á heimasíðu Þyts.
Verið er að skoða möguleikann á því að breyta lit jakkanna úr grænum yfir í svartan. Ástæðan fyrir því er vegna þess hve erfitt er fá að græna jakka en efnið í þá þarf að panta erlendis frá, ásamt því að þá þarf að panta fleiri jakka í einu.