Nýliðanámskeið hefst í dag
Golfkennarinn Mark Irving verður með nýliðanámskeið í sumar hjá Golfklúbbi Sauðárkróks.
Kennt verður í hópum með sex í einu. Fyrsta námskeðið hefst í dag, mánudaginn 3. júní kl. 18:00. Á námskeiðinu verður farið yfir helstu atriði varðandi golfíþróttina og er upplagt fyrir nýliða að hefja sumarið á námskeiði sem þessu.
Áætlað er að hverju námskeiði ljúki á viku og nemendur hittist 3 – 4 sinnum á þeim tíma. Námskeiðið kostar 8000 kr fyrir hvern einstakling. Hægt er að panta pláss á námskeiðinu í netfanginu unnar.ingvarsson@gmail.com eða í síma 892-6640. Einnig verður hægt að panta einkatíma hjá golfkennaranum. Golfklúbbur Sauðárkróks segir frá þessu.