Nýr deildarstjóri ferðamálarannsóknasviðs við Selasetur Íslands

Jessica Faustini Aquino er nýr deildarstjóri ferðamálarannsóknasviðs Selaseturs Íslands. Mynd/Selasetur Íslands.
Jessica Faustini Aquino er nýr deildarstjóri ferðamálarannsóknasviðs Selaseturs Íslands. Mynd/Selasetur Íslands.

Jessica Faustini Aquino er deildarstjóri ferðamálarannsóknasviðs Selaseturs Íslands og kennari við Hólaskóla. Á vef Selasetursins kemur fram að hún er með Ph.D. gráðu í samfélagsauð og þróun frá Arizona State University í Bandaríkjunum. Hún er líka með B.S. gráðu í náttúruverndarlíffræði og M.S. gráðu í afþreyingar- og ferðamálafræði. 

„Rannsóknaáhugasvið hennar eru upplifun ferðamennskunnar frá sjónarhól íbúa og ferðamanna, og möguleg áhrif ferðamennsku á samfélagsþróun og varðveislu verndaðra náttúrusvæða,“ segir á vefnum. 

Nánari upplýsingar um Jessica má sjá á vef Selasetursins.  

Fleiri fréttir