Nýr Landspítali ohf til samstarfs við Fjölnet

Nýr Landspítali ohf. og Fjölnet hafa gert með sér samning vegna reksturs tölvukerfa. Á myndinni sjást, Sigurður Pálsson rekstrarstjóri Fjölnets og Gunnar Svavarsson NLSH handsala samninginn.
Samkvæmt samningnum tekur Fjölnet að sér hýsingu og rekstur á miðlægum kerfum ásamt því að sjá um útstöðvar fyrirtækisins. Starfsmenn Nýs Landspítala fá einnig aðgang að þjónustuveri Fjölnets.
Nýr Landspítali ohf. (NLSH) er opinbert hlutafélag sem hefur það að markmiði að standa að nauðsynlegum undirbúningi og láta bjóða út byggingu nýs Landspítala við Hringbraut í Reykjavík og semja um að ríkið taki bygginguna á langtímaleigu að útboði loknu.
Fjölnet er vaxandi tæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í hýsingu og rekstri tölvukerfa Unnið er með gæða og öryggisvottunina ISO 27001. Fjölnet fagnar hinum nýja viðskiptavini.
Fréttatilkynning