Nýr námsvísir Farskólans

Námsvísi Farskólans fyrir vorönn 2017 verður dreift í öll hús á Norðurlandi vestra í vikunni.
Námsvísi Farskólans fyrir vorönn 2017 verður dreift í öll hús á Norðurlandi vestra í vikunni.

Út er kominn námsvísir Farskólans fyrir vorönn 2017. Að vanda er mikið úrval námskeiða í námsvísinum, af ýmsum toga. Að sögn Halldórs Gunnlaugssonar verkefnastjóra hjá Farskólanum hefur verið mikið um að vera það sem af er þessu ári. Fiskvinnslufólk hefur til að mynda nýtt tímann til að sækja námskeið á meðan verkfall sjómanna stendur yfir og fjöldi námskeiða er í gangi.

Námsvísirinn ætti að berast í öll hús á Norðurlandi  vestra í vikunni en hann er þegar kominn á vefinn og má nálgast hann á þessari slóð.

 

Fleiri fréttir