Nýr slökkvibíll í Húnaþingi vestra

Myndatexti: Pétur R. Arnarsson slökkviliðsstjóri Húnaþings vestra með nýja bílinn fyrir utan Ráðhúsið á Hvammstanga. Mynd: Húnaþing vestra.
Myndatexti: Pétur R. Arnarsson slökkviliðsstjóri Húnaþings vestra með nýja bílinn fyrir utan Ráðhúsið á Hvammstanga. Mynd: Húnaþing vestra.

Húnaþing vestra hefur fengið afhentan nýjan slökkvibíl af gerðinni Ford F550 4x4 super duty crew cab, árgerð 2017. Bíllinn sem smíðaður er á Ólafsfirði hentar að fullkomlega fyrir starfssvæði Húnaþing vestra þar sem eru langar vegalengdir og víða vegslóðar sem bera ekki hefðbundna slökkvibíla.

Á heimasíðu Húnaþings vestra segir að bíllinn sé með gott aðgengi og einfaldur í notkun en öll stjórnun, dælubúnaður og vinnuumhverfi í bílnum er mjög gott. Bíllinn er lipur og fínn í keyrslu, búinn fullkomnum slökkvibúnaði m.a. tveimur  háþrýstikeflum. Í bílnum er nóg af vatni fyrir fyrstu aðgerðir slökkvistarfs á vettvangi og verður notaður bæði sem tækjabíll og slökkvibíll og leysir þannig af hólmi tvo bíla. 

Fleiri fréttir