Nýtt almannatengslafyrirtæki á Króknum
Markvert ehf er nýtt fyrirtæki á Sauðárkróki sem sérhæfir sig í viðburðastjórnun, markaðs- og kynningarmálum og almannatengslum. Eigendur eru hjónin Karl Jónsson og Guðný Jóhannesdóttir.
Markvert býður upp á þjónustu við aðila sem vilja halda viðburði af ýmsum toga. Fyrirtækið getur haldið utan um viðburði frá a-ö, eða komið að einstökum þáttum framkvæmdarinnar, sem lúta m.a. að markaðs- og kynningarmálum.
Markvert getur tekið að sér kynningarmál fyrirtækja á ársgrundvelli og séð um uppfærslu á heimasíðum sem dæmi, en allt of mikið er um það að uppfærslum sé ekki sinnt í amstri dagsins.
Markvert getur tekið að sér tímabundin verkefni, kynningar- og markaðsátök fyrir vörur og þjónustu af ýmsum toga. Ef fyrirtæki vilja vekja athygli á starfsemi sinni, halda kynningardag, eða senda frá sér kynningarefni og fréttatilkynningar, getur Markvert komið að málum.
Markvert heldur úti heimasíðu þar sem nálgast má allar upplýsingar um fyrirtækið. Vefslóðin er www.markvert.is. Einnig er Markvert með síðu á Facebook sem hugmyndin er að nota í þágu viðskiptavina fyrirtækisins undir slagorðinu „Markvert í Skagafirði.“
Nánari upplýsingar gefa þau Karl og Guðný, í síma og í gegn um netfang fyrirtækisins markvert@markvert.is.
Nánar á markvert.is.
/Fréttatilkynning