Nýtt bindi Byggðasögu Skagafjarðar væntanlegt
feykir.is
Skagafjörður, Listir og menning
05.11.2014
kl. 11.25
Frágangi við 7. bindi Byggðasögu Skagafjarðar er nú lokið og er hún væntanleg á jólamarkaðinn í lok þessa mánaðar. Bókin verður 480 blaðsíður að stærð og fjallar um hinn gamla Hofshrepp, sveitirnar Óslandshlíð, Deildardal, Unadal og Höfðaströnd. Hofsós og þær jarðir sem tilheyrðu Hofsóshreppi, munu bíða lokabindis.
Samkvæmt vef Sögufélags Skagfirðinga nær umfjöllunin nær til samtals 78 jarða og smábýla en 640 ljósmyndir eru í bókinni, auk 45 korta og teikninga ýmiss konar.
Umbrot og uppsetning bókarinnar fór fram í Nýprenti á Sauðárkróki og annaðist Óli Arnar Brynjarsson það verk. Prentsmiðjan Oddi í Reykjavík mun sjá um prentunina og er verkið komið þangað.