Nýtt frá Real Techniques: Nic's Picks!!!

Fyrir nokkrum vikum spæjaði Frökenin það útundan sér að inn á förðunarmarkaðinn væri að detta nýtt burstasett frá Real Teqhniques sem kallast Nic's Picks! Fyrir þá sem ekki vita, þá eru tvær systur sem standa á bak við Real Techniques; Sam og Nic (þó að Sam sé aðalsprautan á bak við burstana, en saman mynda þær systur förðunarveldið Pixiwoo), og er nýja burstasettið, sem kemur í takmörkuðu upplagi og er því svokallað "Limited edition" samansafn af uppáhaldsburstum Nic.

Burstarnir fimm eru útlistaðir og útskýrðir aftan á pakkningunni Burstarnir fimm eru útlistaðir og útskýrðir aftan á pakkningunni

Frökenin er náttúrulega forfallinn Real Techniques fíkill, á flesta burstana frá þeim og þessvegna gerði hún sér strax fulla grein fyrir því að Nic's Picks væri akkúrat það sem hana vantaði alls ekki (enda skipta förðunarburstar dívunnar tugum) en varð samt að eignast! Frökenin smellti sér því inn á veraldarvefinn í leit að Instagram og Facebook leikjum sem gerðu henni kannski kleyft að eignast þetta sett... En allt kom fyrir ekki!

Fallegir, ekki satt?? Fallegir, ekki satt??

Svo var það fyrir rúmri viku að Fabjúlöss fær tilkynningu um póstsendingu og varð frekar hvumsa þar sem ekkert hafði verið pantað sem hún vissi af. Þegar pakkinn var svo opnaður heyrðist halelújatónlist þar sem blasti við henni ekkert annað en Nic's Picks burstasettið með skilaboðunum "Njóttu vel" frá elsku vinkonum Fabjúlössar hjá Ölgerðinni (umboðsaðilum RT á Íslandi)!!! Fabjúlöss er ekki frá því að henni hafi vöknað um augun og hlýnaði alveg inn að hjartarótum, þvílíkar elskur!!!

Ó svo fallegi pakkinn frá elskunum í Ölgerðinni!! Ó svo fallegi pakkinn frá elskunum í Ölgerðinni!!

En nú er Fab búin að hafa rúma viku í að prufukeyra burstana og hefur náð að mynda sér vissar skoðanir á þeim þannig að hérna koma hennar athugasemdir við hvern bursta fyrir sig. Þar sem burstarnir hafa verið meira og minna í notkun, og Frökenin ekki svo sniðug að mynda burstana áður en hún fór að nota þá, þá eru þeir ekki alveg hreinir, vonandi fyrirgefa lesendur það:

 

 

 

 

1. Duo Fiber Face Brush:

Duo Fiber andlitsburstinn Duo Fiber andlitsburstinn

Þessi dúnmjúka dásemd er algjör snilld. Frökenin hefur notað hann bæði til að bera sólarpúður á andlitið en einnig sem meikbursta og er hann snilld í hvorutveggja. Burstinn er svo mjúkur að allt dreifist einhvernveginn jafnt og slétt á andlitið

 

 

 

2. Cheek Brush (Exclusive):

1sedited Kinnalitaburstinn

Þessi er stórgóður, bæði sem kinnalitabursti og í contour á stærri svæði á andlitinu, þær klikka ekki frekar en fyrri daginn á kinnalitaburstunum þessar elskur! Einnig fyndist Frökeninni ekki ólíklegt að þessi væri góður sem meikbursti, þó hún sé ekki enn búinn að nota hann sem slíkann!

 

 

 

 

3. Angled Shadow Brush (Exclusive):

Skáskorni augnskuggaburstinn Skáskorni augnskuggaburstinn

Þessi er alveg sérstaklega vel til þess fallinn að blanda augnskuggann á "crease" svæðinu (svæðið undir augnbeininu, fyrir ofan augnlokið) og alveg snilld í smokey!

 

 

 

 

4. Base Shadow Brush:

Augnskuggabursti Augnskuggabursti

Frábær bursti!!! Góður bæði í að bera augnskuggann á, en líka alveg stórkostlegur í að blanda! Frökenin er alltaf frekar veik fyrir góðum blöndunarburstum, og er þessvegna yfir sig ástfangin af bæði þessum og skáskorna augnskuggaburstanum!

 

 

 

5. Eyeliner Brush (Exclusive):

Skáskorni eyeliner burstinn Skáskorni eyeliner burstinn

Þessi bursti er akkúrat burstinn sem Fabjúlöss fannst alltaf vanta í Real Techniques fjölskylduna; lítill skáskorinn eyeliner bursti. Þessi er mjög þéttur og stinnur og því alveg óhugnalega góður í geleyeliner og líka frábær að nota með augnskugga til að mynda cut crease línu!

 

 

Hérna koma svo nokkrar farðanir sem Frökenin hefur framleitt með þessum burstum:

7 okteditedw
9oktedited2w
10 okteditedw 13 okteditedwFröken Fabjúlöss mælir eindregið með þessu burstasetti, og ráðleggur lesendum að hafa hraðar hendur þar sem þessi burstasett eru í takmörkuðu upplagi!

Ást og Glimmer!

 

Fleiri fréttir