Nýtt lúxushótel opnað á Deplum í Fljótum

Nýja hótelið á Deplum í Fljótum. Mynd: Kristinn Kristjánsson.
Nýja hótelið á Deplum í Fljótum. Mynd: Kristinn Kristjánsson.

Nýtt lúxushótel bandaríska ferðaþjónustufyrirtækisins Eleven Exerience að Deplum í Fljótum verður opnað á fimmtudaginn. Þá kom fyrsti hópurinn til dvalar þar.

Tugir iðnaðarmanna hafa verið að störfum á Deplum undanfarna mánuði. „Menn eru búnir að vinna dag og nótt og nú er allt að smella, sagði Friðleifur Egill Guðmundsson, framkvæmdastjóri hjá Eleven Experience á Íslandi, þegar Feykir hafði samband við hann á þriðjudaginn.

Friðleifur sagði jafnframt að vel væri bókað út vorið. „Sumarið lítur líka nokkuð vel út,“ sagði Friðleifur, en yfir sumartímann er einkum lögð áhersla á veiði, auk þess sem ýmis afþreying og þægindi eru í boði á staðnum.

Í húsinu eru þrettán herbergi. Á staðnum er einnig útisundlaug, heitir pottar, gufubað og fleiri þægindi. Þá geta gestir Depla til að mynda að stunda þyrluskíðamennsku, hestaferðir, veiði, sjósund og hvalaskoðun. 

Meðfylgjandi myndskeið tók Kristinn Kristjánsson fyrir nokkrum dögum.

 

 

Posted by Kristinn Kristjánsson on Sunday, 10 April 2016

Fleiri fréttir