Nýtt skíðasvæði Tindastóls á N4
feykir.is
Skagafjörður
18.10.2018
kl. 13.48
N4 fór í Tindastólinn á dögunum og ræddi við Viggó Jónsson um nýju skíðalyftuna sem liggur alla leið upp á topp Tindastóls. Eins og sést á meðfylgjandi myndbandi blasir útsýnið yfir fjörðinn fagra og jafnvel yfir í næstu sýslur. Skíðaleiðirnar sem hægt verður að renna sér eftir geta orðið fjölmargar í framtíðinni og mikil eftirvænting hjá skíðafólki.
Karl Eskil Pálsson fór ásamt tökumanni og forvitnaðist um framkvæmdir og framtíðarsýn skíðadeildar Tindastóls.