Óánægja með hálkuvarnir
Í orðsendingu sem barst á fésbókarsíðu Feykis, og ætluð var Vegagerðinni og Sveitarfélaginu Skagafirði, spyr Guðríður Magnúsdóttir í Viðvík um hálkuvarnir. Þar segir Guðríður m.a. :
„Ef það er fimm daga þjónusta á út-Blönduhlíð því er þá ekki löngu búið að salta þessa leið? Nú aka tveir skólabílar þennan veg, samtals fjórar ferðir á dag fimm daga vikunnar og í janúarbyrjun þurfti annar skólabíllinn að fá út-Blönduhlíðarbörnin selflutt til sín að gatnamótunum hjá Narfastöðum og aka í gegnum Sauðárkrók í Varmahlíðarskóla í þrjá daga. Og nú í þessum skrifuðum orðum (30. janúar kl. 17:40) er skólabíllin "fastur" í ofsahálku hjá Frostastöðum en skólanum lauk kl 15:30. Er ekki kominn tími á að sinna þessum vegkafla ? Eða er verið að bíða eftir slysi?“
Feykir sló á þráðinn til Guðríðar sem sagðist orðin langþreytt á þessu ástandi. Það væri gremjulegt að horfa upp á það við gatnamótin hjá Narfastöðum að aðeins væri saltað í tvær áttir af þremur, það er ekki í Blönduhlíðina, þó að umræddir vegir væru allir innan sama sveitarfélagsins. „Þetta er jú sameiginlegt sveitarfélag og alltaf þurfum við í sveitinni að berja í borðið til að fá þjónustu.“
Aðspurð segist Guðríður hafa fengið þau svör hjá Vegagerðinni að á umræddum vegi væri aðeins fjögurra daga þjónusta. Hún segist ekki hafa sent fyrirspurnirnar beint á sveitarfélagið, enda væri þetta mál frekar á könnu Vegagerðarinnar. „En það er furðulegt að þarna sé ekki fimm daga þjónusta, þarna er jú skólaakstur fimm daga vikunnar a vegum sveitarfélagsins.“