Ódýrari skólamáltíðir og síðdegisvistun í Skagafirði og í Húnaþingi vestra

Heimild: asi.is
Heimild: asi.is

Í síðustu viku greindi feykir.is frá nýlegum samanburði ASÍ á gjaldskrá leikskólanna í stærstu sveitarfélögum landsins.  Könnunin náði einnig til gjaldskrár fyrir skólamáltíðir og síðdegisgæslu og var útkoman hjá Sveitarfélaginu Skagafirði einnig jákvæð hvað það snerti.

Í könnun ASÍ á kostnaði foreldra við fæði og síðdegisgæslu barna hjá 15 stærstu sveitarfélögum landsins kemur fram að gjaldskrá Sveitarfélagsins Skagafjarðar fyrir hádegismat, þriggja tíma vistun og síðdegishressingu í 21 dag er sú ódýrasta eða 24.234 kr. á mánuði.  Það er 51% lægra en hjá Garðabæ sem er með hæstu gjaldskrána. 

Á heimasíðu Húnaþings vestra kemur fram að sambærilegur kostnaður hjá Grunnskóla Húnaþings vestra er 23.240 kr. fyrir morgunhressingu, hádegisverð, síðdegisverð og frístundagæslu eða um 1000 kr. lægri en í Skagafirði og 13.244 kr. lægri en í Garðabæ þar sem kostnaðurinn er 36.484 á mánuði.

Nánar má fræðast um könnun ASÍ hér

 

Fleiri fréttir