Ofnæmisviðbrögð við bólusetningu
Nokkrar stúlkur í Grunnskóla Húnaþings vestra sem bólusettar voru gegn leghálskrabbameini HPV í gærmorgun fengu einhverskonar ofnæmisviðbrögð og voru fluttar til nánari skoðunar og eftirlits á Heilbrigðisstofnun vesturlands á Hvammstanga.
Samkvæmt tilkynningu frá skólanum kallaði læknir til sjúkrabíla sem flutti stúlkurnar á Heilbrigðisstofnunina en við fyrstu skoðun virtust ekki um alvarleg viðbrögð að ræða.
Stúlkur í 7. bekk koma ekki til með að verða bólusettar fyrr en eftir samráð við landlækni og mun skólahjúkrunarfræðingur gefa út tilkynningu þegar næstu skref verða ákveðin.