Óhapp við Fisk Seafood

Kallað var til aðstoðar lögreglu og sjúkrabíls í morgun þegar óhapp varð við Fiskiðjuna á Sauðárkróki.

Að sögn lögreglunnar á Sauðárkróki féll starfsmaður þar í yfirlið þegar hann var við störf við fiskvinnsluborð. Kenndi hann nokkuð til í baki eftir fallið og var fluttur á Heilbrigðisstofnunina til skoðunnar. Viðkomandi missti aldrei meðvitund.

 

 

Fleiri fréttir