Ókunnugt ljós veldur Skagfirðingum heilabrotum
Torkennilegt ljós hefur nokkrum sinnum sést á himninum yfir Skagafirði að undanförnu og þá helst á föstudags og laugardagskvöldum. Ljósið er appelsínugult á litið og svífur yfir á nokkrum hraða.
Tvær ungar stúlkur sáu ljósið um klukkan 20:30 á föstudagskvöldið er þær voru staddar í Grenihlíðinni og lýsir önnur þeirra Berglind Ýr Björgvinsdóttir upplifun sinni á þessa leið.
-Ég og vinkona mín komum auga á skært appelsínugult ljós á himninum svífa hérna yfir Grenihlíðinni og fór í austur. Þetta var aðeins stærra en svona venjuleg stjarna á himni alveg skær og fór á svona ágætlega miklum hraða. Ég er ekki viss um hvert það fór en svo hvarf þetta bara inn í ský eftir ca. 2 mínútur. Þetta var ekki neyðarblys ég er nokkuð viss um það því að það dettur niður á jörðina. Okkur þykir þetta mjög merkilegt.
Undir það tók Kristján Elvar Gíslason sem náði að mynda ljósið á símann sinn en hann var á svipuðum slóðum og stúlkurnar. Kristján Elvar segist ekki gera sér grein fyrir því hvers konar ljós var þar á ferðinni og ekkert í líkingu við það sem hann hefur áður séð. Lýsing hans á fyrirbærinu er samhljóða því sem stúlkurnar segja. Myndirnar sem Elvar tók eru kannski ekki skýrar en sýna þó að eitthvað er í loftinu.
Sagt var frá öðrum sjónarvotta um síðustu helgi hér á Feyki en ljósið var þá á öðrum stað á himninum en eins útlits að stærð og skærleika.
Myndbandið hér að neðan tók Kristján Elvar og það er að sjálfsögðu litla ljósið í fjarska sem um ræðir.
http://www.youtube.com/watch?v=M8GM17DBBJs&feature=youtu.be