Umhverfisspjöll af völdum olíuflutningabíls liggja ekki fyrir - FeykirTV

Mikil mildi þykir að ekki fór verr er olíuflutningabíl valt skammt frá bænum Höskuldsstöðum í Blönduhlíð í Skagafirði á sjöunda tímanum í kvöld. Ökumaður olíubílsins slapp án teljandi meiðsla en eins og sjá má á meðfylgjandi myndskeiði er bíllinn ónýtur. Lögregla og slökkviliðsmenn hjá Brunavörnum Skagafjarðar voru að störfum þegar blaðamanni Feykis bar að í kvöld.
Tæpir 30 þúsund lítrar af gasolíu var í bílnum en eins og fram kom í frétt Feykis fyrr í kvöld er búið að koma í veg fyrir lekann. Verið er að dæla olíunni af bílnum áður en bíllinn verður réttur af og fjarlægður af vettvangi en gert er ráð fyrir því að búið verði að dæla allri olíu úr bílnum og tengivagninum síðar í kvöld.
Ekki liggur fyrir hver umhverfisspjöllin verða af völdum lekans þar sem töluvert magn olíu hefur lekið undir bílinn. Það mun skýrast þegar bíllinn hefur verið réttur af og þá kemur betur í ljós hversu umfangsmiklar hreinsanir þurfa að koma til á svæðinu og hvort skipta þurfi út jarðveginum.