Olíukerra á hliðina

Óhapp hafði orðið skammt frá bænum Stóru-Gröf syðri, við þjóðveg 75 Sauðárkróksbraut,  þegar blaðamaður átti leið þar um á fjórða tímanum í gær. Kerra aftan í olíubíl fór á hliðina utan við veg en bílstjóra sakaði ekki og olíubílinn stóð á öllum hjólum á vegarslóða skammt utan vegar.

Óhappið varð með þeim hætti að vegna flughálku sem var á staðnum ákvað bílstjórinn að keyra inn á vegarslóða sem liggur meðfram veginum á þessum slóðum og skilja kerruna eftir. Ekki vildi betur til en svo að þegar hann hugðist bakka kerrunni stuttan spöl rann hún til og fór á hliðina. Aðstoð var væntanleg þegar blaðamann bar að garði, bæði til að dæla af kerrunni og rétta hana við.

Fleiri fréttir