Öllum umsóknum hafnað

Staða skólastjóra við Varmahlíðarskóla í Skagafirði er laus til umsóknar. Leitað er að öflugum og framsýnum leiðtoga sem er tilbúinn til að leiða þróttmikið skólastarf og taka þátt í eflingu skólasamfélagsins í héraðinu. Staðan var einnig auglýst fyrir fáeinum vikum og bárust þá sex umsóknir, en meirihluti samstarfsnefndar sveitarfélagsins Skagafjarðar með Akrahreppi samþykkti að hafna öllum umsóknum, á grundvelli mats Capacent á umsækjendum.

 Samkvæmt auglýsingunni er á starfssviði skólastjóra að bera ábyrgð á rekstri skólans og daglegri starfsemi, ásamt faglegri forystu á sviði kennslu og þróunar í skólastarfi og ábyrgð á samstarfi við heimili og samfélag. Þess er krafist að umsækjandi hafi starfsheitið grunnskólakennari og viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynslu á grunnskólastigi, sbr. 12. grein laga nr 87/2008. Einnig hljóða í menntunar- og hæfniskröfur í auglýsingu upp á að viðkomandi skuli hafa reynslu af rekstri, stjórnun og þróunarstarfi, hæfni í mannlegum samskiptum og metnað, skipulagshæfni og leiðtogahæfileika.

Í fundargerð samstarfsnefndarinnar frá því á föstudaginn kemur fram að samþykkt hafi verið á síðasta fundi nefndarinnar að leita til ráðningarfyrirtækis. Sem fyrr segir samþykkti meirihluti nefndarinnar að hafna umsækjendum á grundvelli mats Capacent og ákveðið var að auglýsa stöðuna aftur.

Í fundargerðinni ítreka fulltrúar Akrahrepps að þeir hafi í upphafi lagst gegn því að leitað yrði til ráðningarfyrirtækis og viljað ráða Láru Gunndísi Magnúsdóttir í starfið. Fulltrúar sveitarfélagsins Skagafjarðar óskuðu bókað að þeir hafi ekki viljað taka afstöðu til umsækjenda án faglegs mats á þeim.

Fleiri fréttir