Ölvuðum vísað frá flugi og enduðu utan vegar

Mennirnir sem veltu bíl rétt hjá Blönduósi fyrr í dag höfðu áður verið til nokkurra vandræða á Sauðárkróki þaðan sem þeir stálu bíl. Í morgun höfðu þeir bókað sig inn í áætlunarflug með flugfélaginu Erni en þegar farþegar gerðu athugasemd við ástand þeirra var þeim vísað frá flugi.

Þaðan héldu mennirnir aftur inn á Sauðárkrók þar sem þeir gengu á milli bíla í leit að verðmætum auk þess sem þeir fóru inn í íþróttahúsið á Sauðárkróki í sama tilgangi. Ekki höfðu þeir mikið upp úr krafsinu nema hvað að þeir náðu að stela bíl og ætluðu að freista þess að fara landleiðina suður þar sem flugleiðin var þeim klárlega ófær. Á flugvellinum höfðu mennirnir á orði að þeir væru á leið í meðferð.

Ekki er vitað hvar mennirnir eru niðurkomnir þessa stundina en gera má ráð fyrir að þeir séu á Sauðárkróki.

Í samtalið við Feyki.is áréttar Stefán Vagn Stefánsson, yfirlögregluþjónn, að alltaf eigi að læsa hýbýlum sínum og bifreiðum og eigi það við  nú líkt og áður.

Fleiri fréttir