Óperudraugurinn í Miðgarði á Sæluviku
Ópera Skagafjarðar í samvinnu við Draumaraddir norðursins munu á næstunni hefja æfingar fyrir söngleikinn „Phantom of the opera / Óperudrauginn“ eftir Lloyd Webber. Leikstjóri verður Stefán Friðrik Friðriksson en stefnt er að því að frumsýna þann 1. maí og verður verkið sýnt í Miðgarði.
Leit stendur nú yfir að áhugasömum og flottum söngröddum, frá 18 ára í kórinn/karlar og konur. Þá er líka leitað eftir tveimur karlmönnum í einsöngshlutverk. Áhugasamir geta haft samband við Alexöndru í síma 894-5254 / alexandra@dreamvoices.is eða DreamVoices Iceland
Áheyrnaprufa verður 10. febrúar kl. 19:00 á Sauðárkróki. Æfingar hefjast í kjölfarið.