Opið allt árið á Kaffi Krók og matseðilinn frá Ólafshúsi fylgir

Það var létt yfir stafsfólki og eigendum á Kaffi Krók þegar staðurinn opnaði eftir breytingar á mánudaginn var. Standandi frá vinstri:  Gísli Rúnar Óskarsson, Tómas Árdal, Selma Hjörvarsdóttir og Ausra Ceglyte. Sitjandi f.v.: Kjartan Skarphéðinn Ástráðsson, Stefán Ingi Svansson og Óli Grétar Óskarsson. Mynd: KSE
Það var létt yfir stafsfólki og eigendum á Kaffi Krók þegar staðurinn opnaði eftir breytingar á mánudaginn var. Standandi frá vinstri: Gísli Rúnar Óskarsson, Tómas Árdal, Selma Hjörvarsdóttir og Ausra Ceglyte. Sitjandi f.v.: Kjartan Skarphéðinn Ástráðsson, Stefán Ingi Svansson og Óli Grétar Óskarsson. Mynd: KSE

Á mánudaginn opnaði veitingastaðurinn Kaffi Krókur á Sauðárkróki eftir miklar endurbætur á eldhúsi staðarins. Segja má að með breytingunni hafi Kaffi Krókur og Ólafshús haft ákveðin hlutverkaskipti, þar sem matseðillinn frá Ólafshúsi fylgdi flutningnum yfir götuna og eftirleiðis verður opið á Kaffi Krók allt árið.

„Við tókum með okkur gamla og góða matseðilinn frá Ólafshúsi, en áhrif nýs eldhúss munu líklega hvetja kokkana til þess að koma með einhverja nýja rétti á næstunni,“ segir Tómas Árdal. Hann segir jafnframt að þessar breytingar hafi verið eitt af því sem þau sáu strax að þau langaði að gera þegar þau festu kaup á stöðunum, ásamt Mælifelli, í byrjun þessa árs.

Blaðamaður Feykis brá sér á hið vinsæla hádegishlaðborð á mánudeginum, en staðurinn opnaði klukkan ellefu, eftir að sunnudagurinn og aðfaranótt mánudags höfðu farið í færa eldhúsið þvert yfir götuna. Það var létt yfir starfsfólkinu þrátt fyrir að mikil vinna væri að baki og gestirnir gerðu góðan róm að breytingunum. Fastagestirnir áttu að vísu eftir að „finna sig“ á hinum nýja stað og velja sér nýjan stað, en bjuggust við að það tæki ekki langan tíma.

Auk umfangsmikilla breytinga á eldhúsi staðarins var húsbúnaður í salnum á Kaffi Krók færður frá Ólafshúsi og þrátt fyrir að salurinn sé að öðru leyti óbreyttur virkar neðri salurinn mun bjartari og stærri en áður var. Þá ber að geta þess að ekki var hjólastólaaðgengi á Ólafshúsi en það er hins vegar til staðar á Kaffi Krók. Eftirleiðis verður opið á Kaffi Krók frá 11-22 alla daga vikunnar, allt árið. Hádegishlaðborðið verður á símum stað á virkum dögum frá 11:30 til 14 og pöntunarsíminn verður sem fyrr 453 6454. Ólafshús verður hægt að nota sem fundaraðstöðu, veisluhald og fyrir aðra viðburði, en verið er að skoða marga möguleika sem standa til boða,“ að því er fram kemur á Fésbókarsíðu staðarins. 

Fleiri fréttir