Opið hestaíþróttamót Þyts
Opið hestaíþróttamót Þyts verður haldið dagana 18. – 19. ágúst nk. á Hvammstanga oger skráning í fullum gangi sem fer fram á kolbruni@simnet.is en henni lýkur á miðnætti þriðjudaginn 14. ágúst.
Við skráningu skal koma fram IS númer hests, kennitala knapa, í hvaða grein og uppá hvora höndina skal riðið. Fyrsta skráning kostar 3.000 kr. og 2.000 kr. eftir það. Skráning fyrir börn og unglinga er 1.500 kr. og greiða skal skráningargjöld inn á reikning 0159-26-001081 kt. 550180-0499 fyrir kl. 20:00 fimmtudaginn 16. ágúst, annars ógildist skráningin.
Mótanefnd áskilur sér rétt til þess að fella niður greinar ef ekki næst næg þátttaka
Greinar:
- 4-gangur og tölt 1.flokkur
- 4-gangur og tölt 2.flokkur
- 4-gangur og tölt ungmennaflokkur
- 4-gangur og tölt unglingaflokkur
- 4-gangur og tölt barnaflokkur
- 5-gangur 1.flokkur
- Tölt T2 1.flokkur
- gæðingaskeið
- 100 metra skeið
- 300 metra brokk
- 300 metra stökk
Verðlaunafé verður fyrir þrjú efstu sætin í 100 m skeiði, brokki og stökki
Sjá nánar á heimasíðu Þyts: http://thytur.123.is/