Opið hestaíþróttamót (UMSS) í Skagafirði 10.-12. maí
Opið hestaíþróttamót (UMSS) verður haldið á félagssvæði Léttfeta á Sauðárkróki dagana 10.-12. maí nk. Skráning berist á itrottamot@gmail.com en henni lýkur mánudaginn 6. maí kl. 23:00.
Við skráningu þarf að gefa upp nafn og kennitölu knapa, nafn og fæðingarnúmer hests (IS), keppnisgrein og uppá hvaða hönd keppandinn vill ríða (ekki fullorðnir).
Skráningargjald er 3.000 kr. fyrir fyrstu skráningu en 1.500 kr. á næstu skráningar hjá sama knapa. Leggja skal inn á reikning UMSS: 310 – 26 – 2690 Kt: 670269-0359 og staðfesting sendist á itrottamot@gmail.com.
Keppt verður í eftirfarandi greinum:
- Pollaflokkur
- Barnaflokkur T7 Létttölt , V5 Létt fjórgangur
- Unglingaflokkur T3 Tölt, V3 Fjórgangur
- Ungmennaflokkur T3 Tölt, V2 Fjórgangur, F2 Fimmgangur
- Opinn flokkur T1 Tölt, V1 Fjórgangur, F1 Fimmgangur, T2 Slaktaumatölt
PP1 Gæðingaskeið , P2 100m skeið.
(sbr. FIPO – ww.hidi.is og http://www.lhhestar.is/static/files/HIDI/FIPO_2011_isl.pdf)
Heimild: Lettfeti.net