Opið hús hjá Slysavarnadeild Skagfirðingasveitar í kvöld

Slysavarnadeild Skagfirðingasveitar verður með opið hús í kvöld, þriðjudaginn 17. janúar, en slysavarnadeildir víða um land eru að kynna starfsemi sína fyrir gestum og gangandi.

„Innan Slysavarnafélagsins Landsbjargar starfa öflugar slysavarnadeildir sem hafa það að meginmarkmiði að koma í veg fyrir slys ásamt því að styðja við björgunarsveitir á sínu svæði. Starf þessara deilda á sér langa sögu en fyrstu deildirnar voru stofnaðar fyrir um 80 árum og hafa í gegn um tíðina unnið öflugt starf í þágu björgunar og slysavarna,“ segir á heimasíðu Landsbjargar.

Verkefni deildanna eru fjölbreytt og áhugaverð og er félagsskapurinn tilvalinn fyrir alla þá sem vilja láta gott af sér leiða í skemmtilegum félagsskap. Þeir sem vilja slást í hópinn bjóða slysavarnadeildir velkomna í kaffi og spjall á milli kl: 20 -22.

Slysavarnadeild  Skagfirðingasveitar er til húsa í Sveinsbúð að Borgarröst 1, Sauðárkróki.

 

 

 

Fleiri fréttir