Opið ísmót Riddara Norðursins

Opna ísmót Riddara Norðursins verður haldið á Tjarnatjörninni við reiðhöllina Svaðastaði næstkomandi laugardag, 14. febrúar. Einungis verður keppt í tölti en keppni fer fram í þremur flokkur.

Um er að ræða flokk 16 ára og yngri, meira vana og minna vana, eis og fram kemur í fréttatilkynningu. Skráning fer fram í Tjarnabæ frá kl. 11:30 til 12:30 á mótsdag og er skráningargjaldið 1.000 krónur.

Mótið hefst kl. 13:00 og þar sem þetta er opið mót er öllum heimil þátttaka. Ríða skal eina ferð á hægu tölti, næst skal sýna hraðabreytingar í tölti, þar á eftir greitt tölt en síðasta ferðin er frjálst val.

Kaffisala verður í Tjarnabæ og verðlaunaafhending fer þar fram að móti loknu. Veitingastaðurinn Ólafshús mun gefa öll verðlaun í öllum flokkum.

„Má þess geta að Riddurum Norðursins þykir gaman að halda mót, hvort sem sé fyrir hesta eða menn, og vonast þeir því til að sjá sem flesta á ísnum. Mótið hefur jafnan verið vel sótt af allskonar gæðingum, og allar líkur á að svo verði einnig þetta árið,“ segir í fréttatilkynningunni.

„Nú er spáð góðu magni af frosti næstu daga og hægviðri á laugardaginn, þá er um að gera að dusta rykið af sér og mæta á Tjarnartjörnina með gæðinginn sinn.Með Skál í Hjarta og Söng í Sinni,“ segir að lokum í tilkynningunni frá Riddurum Norðursins.

 

Fleiri fréttir