Opinn fundur foreldra í Miðgarði í kvöld
Foreldrar barna á biðlista á leikskólanum Birkilundi hafa boðað til opins fundar í Menningarhúsinu Miðgarði í kvöld og hefst fundurinn hefst kl 20:30. „Skorum við sérstaklega á fulltrúa sveitarstjórna sem hafa með þessi mál að gera til að koma og svara þeim spurningum sem brenna á foreldrum,“ segir meðal annars í fréttatilkynningu.
Foreldrar hafa ritað opið bréf til Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Akrahrepps, í Feyki og á Feyki.is, þar sem spurt er hvort eina lausnin sé að flytja burt.
Dagskrá fundar er:
- Bráðabirgðalausn vegna vöntunar á leikskólarýmum í vetur –
- Varanleg lausn á leikskólamálum í Varmahlíð, hvert er framhaldið? –
- Orðið er laust -
„Vonumst við, foreldrar, til að sjá sem flesta er málið varðar á fundi þessum og skorum við sérstaklega á fulltrúa sveitarstjórna sem hafa með þessi mál að gera til að koma og svara þeim spurningum sem brenna á foreldrum og öðrum sem málið varðar. Við trúum því að hægt sé að finna bráðabirgðalausn á vandanum svo að fólk geti stundað sína vinnu áfram vitandi að börnin þeirra eru í öruggum höndum,“ segir í fréttatilkynningu frá foreldrum.
Með vinsemd og virðingu,
Unnur Gottsveinsdóttir
Stefán Gísli Haraldsson
Anna Lilja Guðmundsdóttir
Finnur Sigurðarson
Aníta Ómarsdóttir
Sigurður Jóhannsson
Helga Rós Sigfúsdóttir
Sigurður Óli Ólafsson
Ólöf Ólafsdóttir
Stefán Halldór Magnússon
Kristín Halla Bergsdóttir
Guttormur Hrafn Stefánsson
Svana Ósk Rúnarsdóttir
Ástþór Örn Árnason