Opinn fundur Landsbankans

Landsbankinn efnir til opins fundar á Sauðárkróki í kvöld 14. febrúar. Fundurinn er öllum opinn og hefst kl. 20.00 í Mælifelli. Á fundinum mun Steinþór Pálsson bankastjóri fjalla um stefnu Landsbankans, hlutverk hans og framtíðarsýn en sérstök áhersla verður lögð á að fjalla um nýsköpun og frumkvæði í atvinnulífinu með það fyrir augum að ýta undir frumkvæði og framtakssemi.

Nýsköpunarþjónusta Landsbankans verður kynnt en einnig munu tala á fundinum Helga Valfells framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs sem fjalla mun um Nýsköpunarumhverfið á Íslandi og fulltrúar nýrra spennandi fyrirtækja ræða reynslu sína.

Það eru þau Valdimar Össurarson í Valorku og Brynja Guðmundsdóttir í Gagnavörslunni sem það gera.

Valorka ehf vinnur að þróun hverfla til virkjunar sjávarfallaorku en þeir hafa mikla sérstöðu og virðast henta mjög vel til virkjunar þess straumhraða sem algengur er við strendur og annes víða um heim.

Gagnavarslan býður upp á heildarlausn á sviði skjalamála og varðveislu og sérfræðiþjónustu við greiningu rekstrarferla og gerð skjalaáætlana. Þá sér fyrirtækið um að varðveita gögn eins og skjöl, muni og menningarminjar fyrir fyrirtæki og stofnanir á öruggan og skipulagðan hátt í sérhæfðu vörslu húsnæði.

Landsbankinn efndi til opinna funda á 9 stöðum um land allt fyrir ári og þá sóttu um 800 manns. Jafnframt átti bankinn fundi í 25 sveitarfélögum með sveitarstjórnarmönnum, atvinnuþróunarfélögum og fleirum til að leita uppi góðar hugmyndir sem bankinn gæti lagt lið. Þessi fundaferð sem nú hefst er framhald þessar funda og þeirrar stefnumótunar Landsbankans að vera hreyfiafl í samfélaginu og ýta undir endurreisn atvinnulífs og fjölgun starfa í landinu, jafnt í þéttbýli og dreifbýli.

Fleiri fréttir