Opinn fundur með Katrínu Jakobsdóttur
feykir.is
Skagafjörður
24.03.2014
kl. 14.49
Opinn fundur verður með Katrínu Jakobsdóttur, formanni Vinstri grænna, á Kaffi Krók í kvöld, mánudaginn 24. mars, kl. 20. Á fundinum ræðir Katrín stöðuna í landsmálum og komandi sveitarstjórnarkosningar, samkvæmt auglýsingu í nýjasta eintaki Sjónhornsins.
Á fundinum mun Bjarni Jónsson fara yfir árangur og verkefni á vettvangi sveitarstjórnarmála. „Allir velkomnir,“ segir loks í auglýsingunni.