Opinn fundur SA um atvinnumálin á Sauðárkróki á morgun
feykir.is
Skagafjörður
09.12.2010
kl. 10.54
Fundaröð Samtaka atvinnulífsins um stöðu atvinnumála og vinnumarkaðinn heldur áfram föstudaginn 10. desember á Sauðárkróki. Fundurinn fer fram á Mælifelli kl. 12 - 14. Vilmundur Jósefsson, formaður SA og Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA munu ræða um stöðuna í atvinnulífinu, komandi kjarasamninga og svara fyrirspurnum.
Stjórnendur og forsvarsmenn fyrirtækja, stórra sem smárra, eru hvattir til að mæta og taka þátt ásamt öllu áhugafólki um uppbyggingu atvinnulífsins.
Nauðsynlegt er að skrá þátttöku en hægt er að hera það HÉR.
Boðið verður upp á léttan hádegisverð.