Opnað fyrir skráningar í dreifnám í Húnaþingi vestra

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í áfanga í dreifnámi hjá FNV í Húnaþingi vestra en skráningar hófust á menntagátt.is þann 12. mars sl. Námið er opið öllum sem hafa lokið grunnskóla óháð aldri og nú geta nemar í 10. bekk og eldri byrjað að skrá sig.

Alls verða átta áfangar í boði næsta haust en aðra áfanga er hægt að fá að taka í fjarnámi. Eftirtaldir áfangar sem verða kenndir eru:

ENS 102
DAN 102
FÉL 103
ÍSL 102
ÍÞR 101
LKN 102
NÁT 103
STÆ 102

Í auglýsingu sem Húnaþing vestra sendi frá sér varðandi dreifnámið var eftirfarandi samþykkt sveitarstjórnar Húnaþings vestra frá 8. mars sl. látin fylgja með:

„Ef af dreifnámi verður í Húnaþingi vestra næstkomandi haust, þá samþykkir sveitarstjórn að nemendur í dreifnámi geti keypt fæði í mötuneyti grunnskólans á sama verði og grunnskólanemendum stendur til boða. Einnig samþykkir sveitarstjórn að breyta reglum um útgáfu frístundakorta á þann hátt að þau gildi einnig fyrir ungmenni 17 og 18 ára. Sveitarstjórn felur byggðarráði fullnaðarákvörðun um fyrirkomulag akstursstyrkja vegna nemenda í dreifnámi.“ 

Nánari upplýsingar má sjá í auglýsingunni á vef Húnaþings vestra, eða með því að smella hér.

Einnig hafa verið teknar saman úthlutunarreglur styrkja vegna aksturs í dreifnám í Húnaþingi vestra, en þær má sjá hér.

Fleiri fréttir