Opnun Húnvetnsku liðakeppninnar 2012 - myndband

Stemningin stigmagnast fyrir Húnvetnsku liðakeppninni en fyrsta mót hennar af fjórum fer fram nk. föstudag, þann 17. febrúar. Hin mótin verða haldin dagana 25. febrúar, 16. mars og 14. apríl. 

Samkvæmt heimasíðu hestamannafélagsins Þyts verður á keppt í fjórgangi á föstudaginn, í 1. flokki, 2. flokki, 3. flokki og flokki 17. ára og yngri (fædd 1995 og seinna). Aðgangseyrir er 1.000 en frítt fyrir 12 ára og yngri.

Hér má sjá myndband sem gert var að tilefni opnun liðakeppninnar.

http://www.youtube.com/watch?v=RK37uNldFf8&feature=player_embedded

Fleiri fréttir