Öskudagsskemmtun Foreldrafélags Árskóla
feykir.is
Skagafjörður
27.02.2014
kl. 10.43
Foreldrafélag Árskóla stendur fyrir öskudagsskemmtun í íþróttahúsinu miðvikudaginn 5. mars. Skemmtunin verður frá kl. 14 – 16, en ekki 14-19 eins og kemur fram nýjasta eintaki Sjónhornsins.
Á skemmtuninni verður kötturinn sleginn úr tunnunni, farið í leiki, karamelluregn, grímuball og andlitsmálun. Einnig verða söngatriði og fer skráning í þau fram á staðnum.
„Allir velkomnir og sjáumst hress,“ segir í auglýsingu Foreldrafélagsins.