Ósmann leggur land undir fót
Skotfélagið Ósmann leggur land undir fót um næstu helgi en þeir munu kynna starfsemi sína í árlegri byssusýning Veiðisafnsins á Stokkseyri. Byssusýningin er haldin í samvinnu við verslunina Vesturröst á Stokkseyri.
Samkvæmt fréttatilkynningu verður fjölbreytt úrval skotvopna til sýnis á á sýningunni, svo sem haglabyssur, rifflar, skammbyssur, herrifflar ásamt ýmsu frá landskunnum söfnurum m.a úr einkasöfnum frá Sverri Scheving Thorsteinssyni, Sigurði Ásgeirssyni, Einari frá Þverá og Drífu-haglabyssur frá Jóni Björnssyni heitnum frá Dalvík.
„Félagsmenn frá Skotfélaginu Ósmann á Sauðárkróki verða á staðnum og kynna sína starfsemi og sýna úrval af byssur frá sínum félagsmönnum. Skotfélagið Ósmann var stofnað á Sauðárkróki þann 8. maí 1991 og er mikill fengur í því að fá þá norðanmenn í heimsókn,“ segir í tilkynningunni.
Sýningin verður opin á laugardeginum 1. og sunnudeginum 2. Mars, frá kl. 11–18, í húsakynnum Veiðisafnsins, Eyrarbraut 49 Stokkseyri.