Ostalína KS á land

Á sunnudaginn kom flutningaskipið Hunteborg  til Sauðárkróks  með sænsku ostasamstæðuna  sem Kaupfélag Skagfirðinga festi kaup á nýverið og ætlar að setja upp á staðnum. Með tilkomu samstæðunnar mun Mjólkursamlag KS stækka verulega við sig en fyrir liggur að  byggja þarf yfir tækjakostinn.

 

Gert er ráð fyrir því að hin nýja viðbygging við samlagið verði í kringum 1000 fermetra og komi sem hrein viðbót við viðbyggingu sem tekin var í notkun fyrir rúmu ári síðan. Ljósmyndari Feykis tók nokkrar myndir þegar verið var að enda við uppskipun hinnar nýju ostalínu.

   

Fleiri fréttir