Óvenju margir nemendur á Hólastað þessu vikuna
Á heimasíðu Hólaskóla er sagt frá því að Það hefur verið óvenjufjölmennt á Hólastað þessa vikuna, þar sem tveir námskeiðshópar hafa verið boðaðir til skólans í staðbundnar lotu.
Á mánudaginn hófst staðbundin lota í námskeiðinu Náttúru Íslands. Hún var þó ekki staðbundnari en svo að fyrsti dagurinn fór allur í vettvangsferð um Skagafjörð. Það má reyndar deila um hvort tíðarfarið þessa dagana býður upp á mikla útiveru, en kennararnir tveir, Bjarni Kristófer og Stefán Óli, létu sig hvergi en skelltu á sig loðhúfunum og héldu sig við fyrirfram ákveðna dagskrá. Meðal annars lá leiðin að Staðarbjörgunum við Hofsós og fram í Kotárgil.
Á þriðjudag var svo haldið út í náttúruna hér heima á Hólum og ekki var hetjuskapur kennaranna minni þá, þegar þeir - annar hvor eða báðir - ruddu brautina í gegnum skaflana, klæddir vöðlum upp fyrir bringspalir. Síðari hluta dagsins og á miðvikudag var þátttakendum, sem alls telja um 50 manns að staðnemunum meðtöldum, skipt upp í minni hópa sem munu svo skila af sér á sameiginlegum vettvangi síðar í dag. Tíminn í lotunni hefur annars verið vel nýttur og í morgun mátti jafnvel heyra hópana metast á um, hver þeirra hefði „unnið“ lengst fram eftir nóttu.
Seinni part á miðvikudag héldu þessir nemar af stað til síns heima. En í þeirra stað birtust fjarnemar í námskeiðinu Byggðaþróun hjá Kjartani Bollasyni. Með staðnemunum telur sá hópur hátt í 40 manns, og nær staðbundna lotan yfir fimmtudag og föstudag.Það má því segja að vikan hafi verið óvenju fjölmenn og viðburðarík á Hólum.