Óviðunandi skólahúsnæði á Sauðárkróki
Á fundi fræðslunefndar Svf. Skagafjarðar sem haldinn var fyrr í vikunni var lögð fram skýrsla mennta- og menningarráðuneytisins um úttekt á Árskóla sem ráðuneytið lét vinna. Húsnæðiskosturinn talinn óviðunandi.
Í meginatriðum eru niðurstöður skýrslunnar þær að Árskóli sé eitt lærdómssamfélag og í Árskóla fari fram metnaðarfullt og árangursríkt skólastarf þar sem nemendum líði vel og líti á skólann sem öruggan stað í leik og starfi. Á hinn bóginn er bent á að viðkvæmasti þátturinn í starfi Árskóla séu húsnæðismál og að skólinn búi við óviðunandi húsnæðiskost. Í skýrslunni eru settar fram tillögur til úrbóta í 10 liðum sem hvoru tveggja lúta að ytri og innri þáttum. Mikilvægasta úrlausnarefnið fyrir Árskóla, að mati skýrsluhöfunda, eru endurbætur á húsnæði skólans.
Í bréfi raðuneytisins, sem sent er sveitarstjóra , er óskað eftir tímasettri umbótaáætlun fyrir 28. febrúar nk. Fræðslunefnd felur fræðslustjóra og skólastjóra Árskóla að gera tillögu að tímasettri umbótaáætlun.