Páll Dagbjartsson hættir sem skólastjóri Varmahlíðarskóla

Á fundi fræðslunefndar Svf. Skagafjarðar í morgun kom fram að Páll Dagbjartsson, skólastjóri Varmahlíðarskóla, hefur ákveðið að láta af störfum í lok þessa skólaárs eftir tæplega 40 ára farsælt starf sem stjórnandi grunnskóla og íþróttamannvirkja í Varmahlíð.

Í framhaldi af því leggur fræðslunefnd til að skipaður verði starfshópur sem fjalli um framtíðarskipulag skólamála og íþróttamannvirkja í Varmahlíð og hann skipi formaður fræðslunefndar, fulltrúi Akrahrepps, 2 fulltrúar Varmahlíðarskóla, 1 fulltrúi Leikskólans Birkilundar og 1 fulltrúi Tónlistarskóla Skagafjarðar.

Fleiri fréttir