Pálmi Sighvats Skákmeistari Skagafjarðar
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
12.03.2015
kl. 11.25
Skákþingi Skagafjarðar 2015 – Landsbankamótinu lauk í gærkvöldi. Pálmi Sighvats stóð uppi sem sigurvegari og hlaut því hinn virðulega titil „Skákmeistari Skagafjarðar“.
Um framkvæmd mótsins sá Skákfélag Sauðárkróks. Um er að ræða kappskákmót sem reiknað er til íslenskra og alþjóðlegra skákstiga. Fyrsta umferðin fór fram 11. febrúar en fimmtu og síðustu umferðinni lauk í gær, 11. mars.
Alls tóku tólf skákmenn þátt í mótinu. Frekari upplýsingar um mótið og fréttaflutning af því má sjá á heimasíðu Skákfélags Sauðárkróks.
Fréttatilkynning