Páskabingó í Víðihlíð
feykir.is
Vestur-Húnavatnssýsla
07.04.2012
kl. 12.28
Kvenfélagið Freyja verður með páskabingó í dag, laugardaginn 7. apríl, í Víðihlíð og hefst það kl. 14:00. Spjaldið er á 300 kr. og er margt góðra vinninga, samkvæmt Norðanátt.is.
Fleiri fréttir
-
„Það er svipuð tilfinning að halda á jólapakka og hreindýrahorni“
Guðmundur Bergmann Jóhannsson býr á Blönduósi með sambýliskonu sinni og þremur köttum. Guðmundur er fæddur og uppalinn í Holti í Svínadal og sem ungur drengur gekk hann í skóla á Húnavöllum. Síðan stundaði hann búfræðinám frá Hvanneyri, tók stóra vinnuvélanámskeiðið, meiraprófið og vann í nærri 30 ár á stórvirkum þungavélum um allt land. Guðmundur varð að hætta að vinna í lok árs 2021 sökum heilsubrests og er öryrki í dag.Meira -
Undirbúningur Landsmóts á Hólum í fullum gangi
Landsmót hestamanna verður haldið á Hólum í júlí 2026, sléttum 10 árum eftir að þar fór fram vel heppnað Landsmót. Það er hestamannafélagið Skagfirðingur sem heldur mótið, en í góðu samstarfi við Háskólann á Hólum, Sveitarfélagið Skagafjörð og Landssamband hestamannafélaga. Undirbúningur fyrir mótið er þegar hafinn enda í mörg horn að líta.Meira -
Pétur, Nesi og Raggi áfram með Stólunum
Tindastólsmennirnir Pétur Rúnar Birgisson, Hannes Ingi Másson og Ragnar Ágústsson hafa skrifað undir samninga um að halda áfram með liðinu. Í fréttatilkynningu frá körfuknattleiksdeild Tindastóls kemur fram að þeir Pétur og Ragnar semji til næstu þriggja ára en Hannes til eins árs.Meira -
Stólarnir mæta toppliði 2. deildar í Fótbolti.net bikarnum
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Íþróttir, Vestur-Húnavatnssýsla, Lokað efni 28.06.2025 kl. 11.57 oli@feykir.isÍ hádeginu í gær, föstudag 27. júní, var dregið í 16-liða úrslit Fótbolta.net bikarsins, sem er bikarkeppni neðri deilda karla. Bæði Kormákur/Hvöt og Tindastóll unnu sína leiki í 32 liða úrslitum keppninnar nú fyrr í vikunni og voru því í pottinum þegar dregið var. Einhverja dreymdi um að liðin mundu dragast saman og spilaður yrði alvöru Norðurlands vestra slagur. Sá draumur rættist ekki.Meira -
Jóhann Daði er nýr formaður knattspyrnudeildar Tindastóls
Framhaldsaðalfundur knattspyrnudeildar fór fram 25. júní og var efni fundarins aðeins eitt, að kjósa formann og stjórn fyrir deildina. Í fréttatilkynningu frá knattspyrnudeildinni segir að það hafi tekist því Jóhann Daði Gíslason gaf kost á sér til formanns og hlaut einróma kosningu.Meira