Peningagjöf til Krabbameinsfélags Skagafjarðar
Þann 23. júní síðastliðinn fékk Krabbameinsfélag Skagafjarðar veglega peningagjöf frá hjónunum í Garðakoti, þeim Pálma Ragnarssyni og Ásu Sigurrósu Jakobsdóttur.
Peningurinn safnaðist er hjónin héldu saman upp á afmæli sitt á dögunum og á að nota til stofnunar utanfararsjóðar fyrir krabbameinssjúka. Pálmi hefur sjálfur verið að glíma við krabbamein og fór til Munchen í Þýskalandi í Proton geislameðferð en kostnaðurinn við slíka meðferð er gríðarlega hár.
Alls söfnuðust 742.850 kr í sjóðinn. Hægt er að styrkja utanfararsjóðinn með því að kaupa tækifæriskort í Blóma og gjafabúðinni á sama hátt og minningarkort en allur ágóðinn af kortunum rennur í utanfararsjóðinn.
Í næsta blaði verður ítarlegt viðtal við Pálma Ragnarsson um veikindin, meðferðina og glímuna við kerfið.