Pétur með hæsta tilboðið í Gljúfurá

Frestur til þess að bjóða í Gljúfurá í Húnavatnssýslu árin 2013 til og með 2016 rann út 30. apríl síðastliðinn. Samkvæmt heimildum veiðivefsins Vötn og veiði var Pétur Pétursson, leigutaki Vatnsdalsár með hæsta tilboðið. Það var Húni.is sem greindi frá þessu í gær.

Gljúfurá er tveggja stanga fluguveiðiá með veiðitíma frá 1. júlí til 20.september. Áin hefur gefið að jafnaði frá um 70 löxum upp í nokkuð á annað hundrað á sumri og oftast er drjúg sjóbleikjuveiði í bland, neðst í ánni.

Á vefnum Vötn og veiði segir að lítið hafi lekið út um útboðið en samkvæmt heimildum vefsins bárust frekar fá tilboð í ána og var Hreggnasi sem leigt hefur ána hin seinni ár ekki meðal þátttakenda. Ekki hafi heldur fengist upplýsingar um tölur í þessu sambandi.

Sjá nánar fréttina á Vötn og veiði HÉR.

/Húni.is

Fleiri fréttir