Pilturinn er látinn

Pilturinn sem slasaðist alvarlega í umferðarslysi á Holtavörðuheiði sl. laugardag er látinn. Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook-síðu Lögreglunnar á Vesturlandi. Pilturinn var á átjánda aldursári.

Í tilkynningunni segir að tildrög slyssins hafi verið á þann veg að fólksbíll á norðurleið fór útaf þjóðvegi nr. 1 á Holtavörðuheiði og farþegi í aftursæti, sem ekki var í bílbelti, kastaðist út úr bifreiðinni er hún fór nokkrar veltur. Pilturinn var fluttur á gjörgæsludeild Landspítalans þar sem hann var síðar úrskurðaður látinn. Ekki er hægt að greina frá nafni hans að svo stöddu.

Ökumaður og farþegi í framsæti sluppu með minniháttar meiðsli. 

Málið er til rannsóknar hjá lögreglunni á Vesturlandi.

 

Fleiri fréttir