Plastpokar Lionskvenna seldir í dag

Í dag ætla félagskonur í Lionsklúbbnum Björk að hefja hina árlegu plastpokasölu sína í Skagafirði og biðla þær til fólks um að taka sölufólki vel og kaupa poka. Pakkningin kostar 1800 krónur og rennur afraksturinn til góðra verka.

 

Að sögn Stefaníu Óskar Stefánsdóttur hafa bæði einstaklingar og stofnanir notið góðs af þeirra framlagi í gegnum tíðina og svo mun verða áfram. Þeir sem verða svo óheppnir að vera ekki heima þegar bankað verður upp á, en vilja eignast pokapakkningu geta haft samband við Hallfríði Guðleifsdóttur í síma 865 5477.

Fleiri fréttir